Tilkynningar um alþjóðastarf

22.4.2024 : Ráðstefna evrópskra þingforseta á Spáni 22.–23. apríl

Radstefna-evropskra-thingforseta-a-Spani-2024-04-22-23_1Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, sækir ráðstefnu evrópskra þingforseta 22.–23. apríl í boði forseta efri og neðri deilda þjóðþings Spánar. Ráðstefnan er að þessu sinni haldin í Palma og til hennar er boðið forsetum þjóðþinga aðildar- og umsóknarríkja ESB, auk forseta þjóðþinga EFTA-ríkja.

Lesa meira

11.3.2024 : Sendinefnd úkraínskra þingmanna í heimsókn á Íslandi

Heimsokn-sendinefndar-ukrainskra-thingmanna-20240311_1Sendinefnd þingmanna frá þjóðþingi Úkraínu, Verkhovna Rada, sem skipa vinahóp Íslands á þinginu heimsækir Ísland 11.–14. mars í boði forseta Alþingis, Birgis Ármannssonar. Í heimsókn í Alþingi í morgun sýndi Birgir Ármannson gestum þingsalinn og á fundi þeirra ítrekaði hann stuðning Íslands og Alþingis við Úkraínu og fordæmdi harðlega ólöglegt innrásarstríð Rússlands sem nú hefur staðið í rúm tvö ár.

Lesa meira

1.2.2024 : Umræður um ársskýrslur alþjóðanefnda 1. febrúar 2024

Umræður um ársskýrslur alþjóðanefnda eru á dagskrá þingfundar í dag en Alþingi á aðild að átta alþjóðlegum þingmannasamtökum. Skýrslurnar má nálgast hér á vefnum og fylgjast með útsendingu frá umræðunum.

Lesa meira

6.11.2023 : Breytt framsetning á kostnaðargreiðslum þingmanna í alþjóðastarfi

Kostnaður þingmanna vegna alþjóðastarfs sem greiddur er af öðrum stofnunum en Alþingi, svo sem Norðurlandaráði eða Evrópuráðsþinginu, birtist nú undir hagsmunaskráningu viðkomandi þingmanns á vef Alþingis. Enda teljast þær greiðslur ekki hluti af greiðslum sem Alþingi innir af hendi vegna alþjóðastarfs þingmanna.

Lesa meira